Portrettmyndir
Persónusköpun fyrir fagfólk og fyrirmyndir
Þegar orðstír, trúverðugleiki og traust skiptir máli
Eftirtektaverðar portrettmyndir með ákveðnum skilaboðum fyrir þína ásýnd, ásjónu og ímynd

Hver er maðurinn?
Hver er þín birtingarmynd?
“Portrett” er myndræn framsetning og persónusköpun fyrir opinberar fyrirmyndir svo sem listamenn, stjórnendur, fagfólk, fræðinga, stjórnmálafólk og aðra til birtingar í hinum ýmsu miðlum.
Ásjóna, ásýnd og ímynd!
Í myndatöku er hægt að fara í margar ólíkar áttir en þetta snýst í raun um að skapa rétta ásýnd fyrir þína ásjónu. Að ná þér og því sem þú stendur fyrir! Jafnvel skapa ímynd í kringum það sem þú hefur afrekað eða stendur fyrir! Þegar vel tekst til tekst okkur jafnvel að sína þína innri persónu!
Það þarf einnig að finna rétta útlitið fyrir myndirnar, skapa tilfinningu og stemningu sem hentar verkefninu! Klæðnaður og stíll skiptir miklu máli. Mælum með að vanda fataval og taka með auka fatnað til að prófa mismunandi útgáfur. Mæta vel snyrt og úthvíld. Við gefum þér nægan tíma til að slaka á þannig að þú getur verið þú sjálf/sjálfur
Fjárfesting til framtíðar
Með góðri portrettmynd ertu að fjárfesta í sjálfum/sjálfri þér. Ekki gjaldfella það sem þú hefur afrekað á löngum ferli með ódýrri eða lélegri mynd sem flakkar um alnetið. Lélegar myndir gera lítið gagn og þarf að endurnýja oft.
Þó að það sé eitt ákveðið verkefni sem þú stendur frammi fyrir núna þá munu góðar portrettmyndir nýtast þér um ókomin ár. Ef þú hugsar það í víðara samhengi þá eru góðar portrettmyndir ómetanlegar. Þín persóna snýst ekki um verð heldur verðmæti.
Komdu í myndatöku hjá fagmanni með mikla reynslu og þín ásjóna verður þeim mun þýðingarmeiri.
Persónusköpun fyrir fagfólk og fyrirmyndir
Sýnishorn af verkum - Smellið til að skoða stærri
Með góðri portrettmynd sendirðu út skilaboð um fagmennsku, trúverðugleika, sjálfstraust og stíl.
Verð og tímabókun:
Portrettmyndir eru unnar í fullkomnu stúdíó og á flottu setti. Við erum með fjölbreytta bakgrunna og setjum upp framúrskarandi lýsingu til að sýna þig í réttu ljósi. Með meiri eftirvinnslu í Photoshop þar sem öllu tjaldað til færðu einstakar portrettmyndir til birtingar í fjölmiðlum og á neti.
Hvað er nú hvað?
Portrettmynd - Persónumynd - Prófílmynd - Passamynd
Mismunandi nálgun fyrir ólíka notkun ⇢ Gæðamunur, stærðarmunur og verðið eftir því!
Ímyndarsköpun fyrir opinbera einstaklinga.
⇢ Birtingarmynd með skilaboðum!
Við gefum þér meiri tíma, vinnum betur á stærra setti með meiri stjórn á lýsingu. Flottari bakgrunnar, meira photoshop, hærri upplausn. Portrettmyndir eru alltaf betri myndir en Persónumyndir sem eru betri en Prófílmyndir sem eru betri en Passamyndir. Fyrir portrettmynd geturðu komið með föt til skiptanna og jafnvel verið betur undirbúin með hárgreiðslu, förðun og leikmuni. Við hjálpum þér að skapa ímynd af þinni persónu!
Upplýsingar um Portrettmyndir
Heimilislegar myndir til að ramma inn.
⇢ Til að eiga, deila og ramma inn
Persónumyndir eru vandaðri portrettmyndir af einstaklingum til heimilisnota. Til dæmist til að setja í ramma upp á vegg eða standramma. Myndir til persónulegra nota. Unnið á stærra sett með betri lýsingu, flottari bakgrunni og gefum ykkur meiri tíma. Meira unnið í Photoshop og afhent í hærri upplausn heldur en Prófílmynd.
Upplýsingar um Persónumyndir
Frjálslegar andlitsmyndir
⇢ Einfalt og ódýrt
Það sem við köllum prófílmyndir (mini portrett) eru frjálslegar passamyndir þar sem þú mátt brosa, snúa til hliðar, halla höfði, hafa öðruvísi bakgrunn og jafnvel laga aðeins. Þær eru hins vegar teknar á litlu einföldu passamynda-setti sem þýðir einfalt og ódýrt. Afhentar í net-upplausn.
Upplýsingar um Prófílmyndir
Til að þú þekkist!
⇢ Formfast skv. opinberum stöðlum
Passamynd (e. ID photo) er auðkennismynd samkvæmt stífum kröfum hins opinbera til að þú þekkist á myndinni. Auðkennismyndir eru þ.a.l. ekki endilega besta útgáfan af þér. Lýsing beint framan á, engir skuggar, einfaldur bakgrunnur og þá má ekkert eiga við myndina í eftirvinnslu. Úprentaðar litlar myndir og afhentar stafrænt í lágri upplausn.
Upplýsingar um Passamyndir
© Jón Páll Vilhelmsson - ljósmyndari