Myndvinnsla - verðlisti
Varanlegir prentmunir ⇢ Til að eiga, deila, dást og njóta!
Ein myndataka
Margir möguleikar
Myndverk:
Prentmunir:
Myndskrár:
Öll verð eru með virðisauka. Fyrir stærri pantanir má dreifa greiðslum.
Stækkanir með kartoni
Klassískar stækkanir með sýrufríu kartoni/passe-partout
Stækkanir eru afhentar tilbúnar með sýrufríu kartoni sem verndar myndina. Kartonin passa beint í algengustu rammastærðir.
Standard - passar í hefðbundna ramma
Ferningslaga - passar í ferningslaga ramma
Ílangar / panórama - passar í lengri ramma
Margar saman - 2-5 myndir saman í ramma
Risamyndir. Hafið bara samband.
Athugið að myndir eru í mismunandi hlutföllum: Lóðréttar/láréttar | Ferningslaga | Ílangar!
Stækkanir með kartoni
Lóðrétt/lárétt | Karton/rammi | Ferningslaga | Panorama | Verð m/kartoni | 20% afsl. fyrir 2+ |
---|---|---|---|---|---|
➡︎ Myndastærð/cm ⬅︎ | Rammastærð - cm | Mynd/karton - cm | Mismunandi (hlutföll) | Verð með kartoni | Blæðandi mynd/án kartons |
9x13 | 13x18 | - | - | 7.500 | 6.000 |
10x15 | 15x20 | 10x10 - (án kartons) | - | 8.500 | 6.800 |
13x18 (Innifalið) | 18x24 | 15x15 - 20x20 | 9x18/18x24 (2:1) | 9.500 | 7.600 |
15x20 (breiður kantur) | 24x30 | - | 12x30/18x36 (5:2) | 12.000 | 9.600 |
18x24 | 24x30 | 20x20 / 30x30 | 14x24/21x30-A4 (16:9) | 14.000 | 11.200 |
20x30 (Innifalið) | 30x40 | - | 15x30/30x40 (2:1) | 19.000 | 15.200 |
30x40 | 40x50 | 40x40 / 50x50 | 20x40/30x50 (2:1) | 29.000 | 23.200 |
40x60 | 60x80 | 50x50 / 60x60 | 17x52/25x60 (3:1) | 39.000 | 31.200 |
Risamyndir og sérstærðir | - | - | - | Hafið samband | - |
Margar myndir saman í ramma
Myndir/cm | Karton/rammi | Verð m/kartoni | Verð: karton og rammi |
---|---|---|---|
::: | ::: | ::: | Verð m/vsk |
2stk 10x15 | 24x30 - lóðrétt/lárett | 12.000 | 18.200 |
3stk 13x18 | 25x60 - lóðrétt/lárett | 15.200 | 24.200 |
4stk 10x15 | 25x60 - lóðrétt/lárett | 22.800 | 31.800 |
5stk 10x15 | 25x60 - lóðrétt/lárett | 34.000 | 43.000 |
4stk 10x10 (2x2 Instagram) | 30x30 - ferningslaga | 27.200 | 33.400 |
6stk 10x10 (2x3 Instagram) | 30x40 - lóðrétt/lárett | 40.800 | 48.300 | 9x 9x9 (3x3 Instagram) | 40x40 - ferningslaga | 54.000 | 61.500 |
Magntilboð
20% afsláttur fyrir fleiri en eitt eintak af sömu mynd í sömu stærð ➡︎ 2+
Magntilboð: | Verð með kartoni | Blæðandi (án kartons) |
---|---|---|
::: | ::: | Verð m/vsk |
Sama mynd í sömu stærð - 2 eða fleiri | -20% | -40% |
10 eða fleiri eins myndir í 10x15 | 3.900/stk | 3.200/stk |
10 eða fleiri ólíkar myndir í 10x15 | 4.900/stk | 3.100/stk |
10 eða fleiri eins myndir í 13x18 | 5.900/stk | 4.700/stk |
10 eða fleiri ólíkar myndir í 13x18 | 6.900/stk | 5.500/stk |
Skýringar:
-
Þið fáið 20% afslátt þegar þið pantið fleiri en eitt eintak af sömu mynd í sömu stærð
-
Kartoni fylga margir kostir, sem eru kannski ekki augljósir, en atvinnuljósmyndarar og innrammarar, sem vilja að myndirnar endist út ævina, nota flestir karton nema það séu notaðar aðrar leiðir sem fagmenn þekkja.
Sýrufrítt karton verndar myndina.
Kartonið heldur myndinni frá glerinu í rammanum og kemur í veg fyrir að myndin klessist á glerið.
Það myndar loftrými sem kemur í veg fyrir raka og myglu.
Það heldur henni flatri ef rétt er staðið að.
Kartonin sem við notum eru í stöðluðum stærðum og passa í hefðbundar rammastærðir.
Karton með baki er bæði góð umgjörð til að afhenda myndir í og til að gefa sem jólagjafir.
Útskorið karton er klassískur og snyrtilegur frágangur sem stenst tímans tönn.
-
Rammastærð = stærð á gleri/baki/kartoni
“Rammastærð” er stærðin á glerinu mælt frá bakhlið. Sama mál og á baki og ytramál á kartoni.
-
Ef þið kjósið að setja myndir í ramma með gleri án kartons eða með tilbúnu kartoni þá kallst það blæðandi stærð. Þá er stærðin “stíft” mál. 13x18cm mynd er skorin í 13x18cm og engin rönd.
-
Myndirnar frá mér eru með rönd utanum myndina og eru aðeins minni en opið á kartoninu. Svo merki ég þær. Þetta er mjög fínn frágangur og lítur vel út en stærðin er aðeins minni en uppgefin stærð.
Staðlaðar stærðir eru í aðeins mismunandi hlutföllum sem breytir mynduppbyggingu smávægilega.
Rammar
Tilbúnir rammar - staðlaðar stærðir
Vandaðir trérammar
Nielsen Quadrum - Vandaðir myndarammar úr gegnheilum viði.
Ferkantaður prófíll - margar stærðir
Til í eftirfarandi tónum:
Lútaðir - hvíttaðir með viðaráferð
Svartir - lakkaðir
Sérpöntun
Eik - viðaráferð
Hvítir - lakkaðir
Sérskornar stærðir t.d. fyrir panorama myndir í mismunandi hlutföllum.
Nielsen Scandic - Hagkvæmir rammar sem líta vel út.
Svartir lakkaðir - Vinsælustu stærðir
Tilvaldir til gjafa þegar fólk er að gefa margar myndir og vill klára dæmið.
Rammarnir eru frá Nielsen Bainbridge einum stærsta rammaframleiðanda í heimi.
➡︎ Rammastærð ⬅︎ | Myndastærð | Ferningslaga | Ílangir - Panorama | Quadrum-Sv/Lút: | Scandic-Svart: |
---|---|---|---|---|---|
Lóðrétt/lárétt | Lóðrétt/lárétt | ::: | ::: | Q-verð m/vsk | Sc-Verð m/vsk |
13x18 | 9x13 | - | - | 2.900 | - |
15x20 | 10x15 | - | - | 3.500 | - |
18x24 | 13x18 - Innifaldar í pökkum | 20x20 (mynd 15x15) | 18x24 (mynd 9x18) | 3.900 | 2.900 |
21x30 - A4 | - | - | 21x30 A4 (mynd 14x24) | 4.500 | - |
24x30 | 18x24 / 15x20 | 30x30 (mynd 20x20) | 25x50 (mynd 17x42) | 4.900 | - |
30x40 | 20x30/22x33 - Innifaldar | 40x40 (mynd 30x30) | 30x50 (mynd 20x40) | 5.900 | - |
40x50 | 30x40 | - | 25x60 (mynd 17x52 eða margar saman!) | 6.900 | - |
Stærri rammar og sérskornir | - | - | - | Hafið samband | - |
Strigamyndir
Hlýlegar barna, systkina og fjölskyldumyndir - með eða án flotramma.
Tímalausar strigamyndir fyrir hlýleg heimili.
Við notum vandaðan striga úr náttúrulegri bómull með fljótandi lamineringu, strekkt á blindramma með upphengjum. Prentað á hágæða prentara með endingargóðu bleki.
Strigamyndir eru ekki í stöðluðum stærðum heldur er það myndin sem ræður því hvað hentar best.
Stærðir hlaupa á 5 cm.
Best er að mæla veggplássið með málbandi og senda svo fyrirspurn á okkur.
Myndirnar skerast mismunandi þannig að þið hugið að hlutföllum.
Lóðréttar eða láráttar | 2:3 eða 3:4 format
Ferningslaga | 1:1 format
Ílangar - Panórama | 2:1 / 2,5:1. / 3:1 format
Hægt er að fá stærri myndir en er í verðlista. Hafið bara samband.
Blindramminn er 20mm. Hægt er að fá þykkari blindramma 45mm og þá bætist 20% við verðið.
ATH hvernig hlutföll henta best fyrir myndina - hafið samband ef þið eruð í vafa!
Flotrammar fyrir strigamyndir
Vegleg framsetning
Flotrammi gerir strigamyndirnar enn veglegri. Sérstaklega þegar um stærri myndir er um að ræða.
Vinsælast: Grannur flotrammi
Lútaður (hvíttaður með viðaráferð) - í sama tón og “Antique” myndirnar
Hvítur lakkaður
Svartur með viðaráferð
Svartur lakkaður
Ýmsir aðrir prófílar! Kíkið við til að skoða úrvalið.
Vintage
Nýtt - Strigamynd á álplötu með “Vintage” viðarramma
Ný framsetning - sama verð og strigamynd með flotramma.
Fyrir lykilmyndir í stærri kantinum gæti þessi nýja framsetning hentað sumum heimilum. Hágæða útprentun á bómullarstriga með hlífðarhimnu í klassískum viðarramma gefur myndunum listrænt yfirbragð.
Vintage viðarrammar:
Klassískur “ljós Vintage” viðarrammi
Klassískur “dökkur Vintage” viðarrammi
Vintage er á sama verði og strigamynd með flotramma
Sama verð á “Strigamynd” og “Vintage”. Svo er innrömmun aukalega - Flotrammi eða trérammi.
Lóðrétt/lárétt - 3:2 / 4:3 | Ferningslaga - 1:1 | Ílangar - 2:1 / 5:2 | Útprentun | Flotrammi/Trérammi | V.m. ramma |
---|---|---|---|---|---|
Strigi/Vintage | ::: | ::: | ::: | ::: | ::: |
18x24 | 20x20 | - | 15.000 | 7.000 | 22.000 |
20x30 / 20x25 | 25x25 | 18x35 | 19.000 | 8.000 | 27.000 |
25x30 | 30x30 | 20x40 | 23.000 | 9.000 | 32.000 |
30x45 - 30x40 | 40x40 | 25x50 / 20x60 | 30.000 | 12.000 | 42.000 |
40x60 - 40x50 | 50x50 | 30x60 / 25x75 | 41.000 | 14.000 | 55.000 |
50x75 | 60x60 | 40x80 / 30x90 | 59.000 | 16.000 | 75.000 |
Risamyndir | Square | Panorama | Verð | Flotrammi/Trérammi | V. m. flotramma |
60x90 | 70x70 | 50x100 / 40x120 | 77.000 | 18.000 | 95.000 |
70x100 | 80x80 | 60x120 / 50x150 | 95.000 | 20.000 | 115.000 |
90x120 | 100x100 | 70x140 / 60x180 | 110.000 | 25.000 | 135.000 |
100x150 | 120x120 | 80x160 / 70x200 | 150.000 | 30.000 | 180.000 |
ATH: Sumir prentarar bjóða upp á ódýr plastefni en þau skemmast á örfáum árum og blindrammarnir verpast. Við notum fyrsta flokks bómullar-strigaefni og vandað rammaefni sem endist í áratugi. Þá setjum við glæru yfir myndina til að loka litnum og vernda hana. Það má meira að segja þurrka ryk og óhreindindi af strigamyndunum okkar með klút.
Tilboð á strigamyndum - 3 fyrir 2
Eigum til nokkra silfraða flotramma og rest af blindrammaefni 18x24 og 40x40 á tilboði
Tilboð - 3 fyrir 2 | Verð m. silfruðum flotramma |
---|---|
::: | ::: |
3 strigamyndir í 18x24 m/silfr. flotramma | 44.000 - 3 myndir |
3 strigamyndir í 40x40 m/silfr. flotramma | 84.000 - 3 myndir |
Álmyndir með álramma
Stílhrein framsetning fyrir nútímaleg heimili.
A: Glerfrítt og glampalaust.
Í stað glers er límd hlífðarfilma yfir myndina til að verja hana óhreinindum og ágangi tímans.
Fyrst er myndin prentuð á hágæða ljósmyndapappír.
Þá er hún límd á álplötu sem er stíft og endingargott efni.
Síðan er hún lamineruð með filmu sem ver myndina.
Loks er hún römmuð inn í álramma með upphengjum.
Rammaefnið er til í nokkrum litum: Svart, dökkgrátt, ljósgrátt, hvíttað og hvítt ásamt nokkrum viðarlitum.
Álmyndir eru ekki í standard stærðum heldur hlaupa á 5 cm.
Hægt er að fá stærri myndir en er í verðlista. Hafið bara samband.
B: Mynd á álplötu
Rammalaus fljótandi framsetning.
Mynd prentuð á vandaðan ljósmyndapappír.
Myndin er límd á álplötu
Lamineruð með hlífðarfilma.
Festingar settar á bakið þannig að myndin “flýtur” aðeins frá vegg.
Lóðrétt / lárétt: | Ferningslaga: | Ílöng (+/-) | Álmynd í álramma | Álmynd - fljótandi |
---|---|---|---|---|
::: | ::: | ::: | Verð m/vsk | Verð m/vsk |
20x25 | 20x20 | 15x30 | 29.500 | 20.000 |
20x30 - 25x30 | 30x30 | 20x40 | 33.000 | 23.000 |
30x45 - 30x40 | 40x40 | 25x50 | 41.000 | 29.000 |
40x60 - 40x50 | 50x50 | 30x60 | 54.000 | 40.000 |
50x75 | 60x60 | 40x80 | 78.000 | 61.000 |
Risamyndir | Square | Panorama | Verð m. álramma | Verð fljótandi |
60x90 | 70x70 | 50x100 | 108.000 | 88.000 |
70x100 | 80x80 | 60x120 | 132.000 | 110.000 |
90x120 | 100x100 | 70x140 | 189.000 | 163.000 |
100x150 | 110x110 | 80x160 | 252.000 | 222.000 |
Góð ráð!
Hvað á myndin að vera stór?
Gamalt húsráð er að setja málningarteip, eða annað límband sem skilur ekki eftir sig lím, fyrir útlínurnar. Þá er auðveldara að sjá fyrir sig hvaða stærð hentar rýminu best!
Þarftu aðstoð við að setja upp myndavegg?
Þið getið sent okkur mynd af veggnum ykkar og við setjum upp skissur þannig að þið sjáið hvernig veggurinn gæti litið út áður en búið er að setja nokkurn nagla í vegginn.
Myndabækur
Innbundnar myndabækur eru varanlegar minningar og oft mest skoðuðu bækurnar á heimilinu!
Sérhannaðar bækur í einu eintaki!
Innbundin myndabók með 10, 20 myndum eða eins mörgum og þið viljið :-)
Það má velja fleiri myndir í bókina en það sem er innifalið. Aukamyndir í bækur eru ódýrustu útprentanirnar.
Myndabækurnar er sérhannaðar fyrir hvern og einn.
Myndirnar eru ca 11x16 cm. Það fer þó eftir hlutföllum, lóðrétt, lárétt, ferkantað eða heil opna.
Myndabók er eiguleg minning og fyrirtaks gjöf. Þær henta fyrir nýbura, barna-, fermingar-, stúdenta- og fjölskyldumyndatökur.
20% afsláttur af aukabókum…
Harðspjaldabók með flötum opnum “Layflat” 10-15 myndir
Myndabók með álímdri kápu. 20x20 eða 30x30cm. 20+ myndir
Myndabækur - harðspjalda eða álímd kápa | Stærð | Kápa | Innif: | Grunnverð: | Aukamyndir í bók |
---|---|---|---|---|---|
Myndabækur í pökkum eru með um 25% afsl. | ::: | ::: | ::: | Verð m/vsk | Verð m/vsk |
Harðspjalda myndabók með 8+ myndum (hámark 16) | 20x20cm | Harðspjalda | 8 myndir (+) | 19.000 | 3.500/aukamynd + stafræn fylgir |
Myndabók 20x20cm með mynd og nafni á kápu - 16 myndir (ekkert hámark) | 20x20cm | Myndakápa | 16 myndir (+) | 29.000 | 3.500/aukamynd + stafræn fylgir |
Stór myndabók 30x30cm með mynd og nafni á kápu - 24+ myndir (ekkert hámark) | 30x30cm | Myndakápa | 24 myndir (+) | 39.000 | 3.500/aukamynd + stafræn fylgir |
Stakar aukamyndir í bækur | 10x15cm | - | Stakar myndir | - | 3.500 stk. |
10+ aukamyndir í bækur - (20% afsl.) | 10x15cm | - | 10+ myndir | - | 2.500 stk. |
2 eða fleiri eins bækur (má breyta 1-2 myndum) | 20x20cm/30x30 | - | - | - | 20% afsl. af aukabókum |
Dagatöl
Góð fyrir alla daga ársins.
3 gerðir af dagatölum með myndum úr myndatökunni.
Lágmark 12 góðar myndir.
Dagatal A3 lárétt - Með stærri myndum en minna mánaðartali
Dagatal A4 lóðrétt - Með stærri myndum en minna mánaðartali
A4 Reitadagatal - Með reitum til að skrifa athugasemdir.
Það er hægt að setja mynd og texta í reitina t.d. af börnunum á tilteknum afmælisdegi.
Dagatöl - skýring: | Verð fyrsta eintak: | Aukaeintök/stk |
---|---|---|
::: | ::: | Verð m/vsk |
Dagatal A3 lárétt - Með stærri myndum en minna mánaðartali | 12.900kr | 6.900 |
Dagatal A4 lóðrétt - Með stærri myndum en minna mánaðartali | 9.900kr | 4.900 |
A4 Reitadagatal - Minni mynd en með reitum til að skrifa athugasemdir. | 9.900kr | 4.900 |
Tækifæriskort
Til að kasta kveðju á sína nánustu og þakka fyrir sig.
Jólakort, boðskort, þakkarkort og fleira.
Þið veljið myndir og sendið texta fyrir forsíðu og innsíðu.
PS: Það er hægt að prenta nafn og heimilisfang á umslög út frá lista í Excel.
Tækifæriskort - skýring: | Lágmarksupplag: | Verð: |
---|---|---|
::: | ::: | Verð m/vsk |
A6/10x15 - Lausar myndir til að setja í kort, allar eins - lágmark 20stk | 20 stk | 330kr/stk. |
A6 - Sérhannað með texta | 20 stk | 480kr/stk. |
A5 - Sérhannað með texta | 20 stk | 590kr/stk. |
A6 - Þríbrotið með 4-6 myndum og texta | 40 stk | 790kr/stk. |
Vélprentað nafn og heimilsfang á umslag úr Excel skjali - [A1: Nafn] - [B1: Gata] - [C1: Póstnr] - [D1: Staður] | - | 145kr/nafn |
MYNDSKRÁR
Stafrænar myndir til að eiga og deila
Net-upplausn
Net-upplausn/skjá-upplausn fylgir með myndatökum - 1.600pixlar / 10x15cm
Stafrænar myndir í stærð 10x15cm eða 1.600 pixlar svokölluð netupplausn / skjáupplausn.
Með "unnum" myndum er átt við að þær eru skornar til og yfirfarnar, sár og marblettir fjarlægðir o.fl.
Ef myndatakan heppnast vel getið þið fengið fleiri myndir umfram það sem er innifalið í myndatökunni.
Hægt er að fá stærri fæla eða allt að A3+ stærð sem er ca 5.000 pixlar eða fyrir stækkanir 40x60cm og enn stærri. Sjá “Prentleyfi”
Þið getið líka fengið auka “stafræn eintök” sem eru ekki í bók.
Stafrænar myndir | Prentstærð/pixlar | Fjöldi | Verð/stk |
---|---|---|---|
::: | ::: | ::: | Verð m/vsk |
Aukamyndir stafrænt í netupplausn - (ca A6) | 10x15cm / 1.600px | 1 | 2.500 |
10 eða fleiri stafrænar aukamyndir í netupplausn - 10+ | 10x15cm / 1.600px | 10+ | 1.900 |
Aukapassamynd - lítil / 600px | 5cm/600px | 1 | 1.500 |
Prentleyfi
Full prentupplausn til að geta unnið úr myndunum sjálf
Með "Prentleyfi" getið þið unnið sjálf úr myndunum (til eigin nota).
Myndskrárnar (fælarnir) eru þá afhentir í hærri upplausn en það sem er innifalið. Það getur verið allt frá miðlungs stækkunum upp í risamyndir.
Það eru kostir og gallar sem fylgja því. Það getur kostað minna, sérstaklega ef þið viljð prenta margar eins myndir, en á móti kemur að þá hef ég minni stjórn á lokaútkomu. Myndir eru í raun ekki fullunnar nema þegar það er búið að prenta og setja í karton eða ramma. Til þess er fagfólkið…
Stafræn afhending | Skýring | Prentstærð/pixlar | Verð |
---|---|---|---|
::: | ::: | ::: | Verð m/vsk |
Prentleyfi A5 - Stök mynd í miðlungs upplausn | T.d. fyrir stærri kort, dagatöl og miðlungs stækkanir | A5 - 15x21cm / 2.500px | 8.000 |
Prentleyfi A3+ - Stök mynd í fullri upplausn | Hægt að prenta að vild t.d strigamyndir, stækkanir o.fl. | A3+ - 30x40cm / 5.000px | 18.000 |
Prentleyfi CD10 - 10 myndir í fullri upplausn | 10 fullunnar myndir sendar stafrænt á netfang | A3+ - 30x40cm / 5.000px | 65.000 |
Prentleyfi CD20 - 20 myndir í fullri upplausn | 20 fullunnar myndir sendar stafrænt á netfang | A3+ - 30x40cm / 5.000px | 125.000 |
Öll verð eru gefin upp með vsk og birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Gjafakort í myndatöku
Persónulegri eða endingarmeiri gjöf er vandfundin
Myndataka sem gjöf
Gjafakort í myndatöku er tilvalið sem jóla- afmælis- eða tækifærisgjöf. Litlir sem stórir pakkar í boði. Móttakandi getur uppfært í stærri pakka ef hann vill!
Myndatökur fara svo fram þegar það hentar viðtakanda.
Hægt er að velja úr ýmsum myndatökutilboðum eða velja ákveðna upphæð:
Listrænt handverk
Sérsniðið að þínu heimili
Þið eignist einstök listaverk af fjölskyldunni ykkar sem er lífstíðareign.
Notið tækifærið og fegrið heimilið með myndum af fallegasta fólki í heimi - börnunum ykkar.
Þið sendið börnunum ykkar skýr skilaboð um það hvað þau skipta ykkur miklu máli.
Þið varðveitið ómetanlegar minningar um viðburði og tímabil í lífi barnanna, tímaskeið sem koma aldrei aftur.
Þið eruð þátttakendur í listrænu ferli sem er skapandi, spennandi og skemmtilegt.
Þið getið fengið margar gerðir myndverka og prentmuna úr einni myndatöku - allt eftir ykkar þörfum.
Fjölskyldumyndir kosta minna en ýmsar fjöldaframleiddar vörur sem veita ykkur takmarkaða ánægju og endast stutt!
Myndir í “skýinu”! Hvað endast þær lengi og hvað verður um þær í framtíðinni?
Myndverk og prentmunir ⇢ Til að eiga, deila, dást og njóta!
Útprentun og innrömmun
Allt á einum stað svo að þið losnið við allt vesenið
Full ljósmyndaþjónusta:
Við eru með áratuga reynslu af myndatökum, myndvinnslu, hönnun og útprentunum. Fólk kemur til okkar til að fá TOPP MYNDIR og FULLA ÞJÓNUSTU. Þú þarf því ekki að þeytast út um borg og bý til að leita að útprentun, innrömmun eða annarri prentþjónustu hjá mörgum aðilum sem hafa minni ástríðu fyrir “okkar” myndum..
Myndverk frá okkur eru persónuleg listaverk og lífstíðareign.
Fagmennska tryggir gæðin
Superprent.is er systurfyrirtæki okkar sem sér um útprentun og innrömmun á stærri myndverkum .
Við prentum myndirnar á fyrsta flokks prentefni úr hágæða prentara, 8 lita Epson P8000 með litarefni sem endist í 100+ ár. Þá erum við með innrömmunarþjónustu til að skila myndverkum tilbúnum til að hengja upp á vegg.
Jón Páll ljósmyndari hefur verið að búa til myndir síðan hann byrjaði að fikta við ljósmyndun í MA 1985. Fullkomnunarárátta ljósmyndarans sér um að útprentun, innrömmun og frágangur verði fyrsta flokks og endist ævilangt.
Myndheimar - ljósmyndaþjónusta | (Superstudio) Snorrabraut 56, 105 Reykjavík ⇢ inngangur bakatil | Sími: 519 9870 | Opið 8:00 - 17:00 (fös - 15:00)
Myndir, texti og vefhönnun ©Jón Páll Vilhelmsson