Barna-, systkina- og fjölskyldumyndir
Fyrir þínar mætustu minningar
Börnin og fjölskyldan er kjarni tilverunnar
Er ekki tilvalið að hafa myndir af fallegasta fólki í heimi fyrir augunum alla daga ársins?
Hver er dýrmætasta eignin þín?
Það kostar sitt að reka heimili og sem foreldrar eigið þið fullt af verðmætum hlutum en það allra dýrmætasta sem þið eigið eru börnin þín - ekki satt? Er ekki sjálfgefið að fegra heimilið með myndum af fallegasta fólki í heimi - börnunum og fjölskyldunni ykkar?
Að styrkja fjölskylduböndin
Það skiptir líka máli fyrir börnin að alast upp í umhverfi þar sem þau eru metin að verðleikum og eru sýnileg sem hluti af heimilislífinu. Fjölskyldumyndir hjálpa til við að viðhalda tengslum og styðja við fjölskyldusamlífið ⇢ alla daga ársins.
Heimilisprýði og varanlegar minningar
Með því að koma með börnin í myndatöku ertu að fjárfesta í framtíð fjölskyldunnar. Þið eignist varanlegar myndir af dýrgripunum ykkar og varðveita ómetanlegar minningar um æskuár barnanna.
Vandamálið er að þau vaxa svo hratt! Þau þroskast, dafna, fermast, útskrifast og áður en maður veit af eru þau orðin fullorðin. Svo eru þau farin að heiman en engar varanlegar myndir til af þeim! Staðreyndin er sú að fólk fer ekki oft í myndatöku!
Gerum þetta saman, höfum gaman og gerum þetta vel.
Myndverk og prentmunir
Til að eiga, deila, dást og njóta!
Full þjónusta
Við sjáum um alla myndvinnslu, hönnun, útprentun og innrömmun. Bestu mögulegu prentgæði, langtíma ending og ekkert vesen.
Fyrir þínar mætustu minningar
Sýnishorn af verkum, innblástur og hugmyndir ⇢ Smellu á myndirnar til að skoða stærri
Jón Páll Vilhelmsson - ljósmyndari
Myndsköpun og listrænn metnaður
Jón Páll Vilhelmsson er ljósmyndari og listamaður sem “skapar” fjölskyldumyndlist. Á heimilum landsmanna hanga tugþúsundir ljósmynda og myndverka eftir Jón Pál sem hefur verið starfandi ljósmyndari í yfir 25 ár - bæði á íslandi og víða erlendis.
Jón Páll hefur lag á að láta börnum og einstaklingum líða vel í myndatöku. Undir styrkri leikstjórn, áhugaverðum uppstillingum, skapandi lýsingu og eftirvinnslu af miklu listfengi færðu eftirtektaverðar fjölskyldumyndir sem standast tímans tönn.
Dýrmætar minningar og varanleg listaverk?
Það er fátt dýrmætara en ásjónur barnanna ykkar. Ég hvet fólk til að “taka” augnablikmyndir á símana sína en set spurningamerki við hvort þær myndir dugi sem varanlegar minningar af ykkar dýrmætustu eign? Er þá ekki betra að treysta fagmanni með áratuga reynslu og fegra heimilið með fallegum ljósmyndum af fjölskyldunni ykkar?
Að koma í myndatöku til Jóns Páls ljósmyndara er persónuleg upplifun þar sem þið eignist sérskapað handverk og lífstíðareign.
Tvískipt þjónusta:
Fyrri hluti ⇢ Myndataka
Fyrst komið þið í myndatöku og greiðið fyrir þann hluta.
Þetta er skapandi ferli sem byggist á flæði til að fá “grunnmyndir” til að velja úr. “Valdar” myndir eru síðan fullunnar og tilbúnar til útprentunar!
Það er engin myndataka eins og ”pakkatilboð” henta í raun fæstum.
Ef börnin eða táningurinn eru óviljug er betra að velja styttra prógram! Yngri börn og stærri fjölskyldur þurfa meiri tíma.
Með meiri tíma er hægt að skapa flottari myndverk og fá fleiri góðar myndir með fjölbreyttari möguleikum fyrir áframhaldandi myndvinnslu!
Þið getið fengið margar gerðir útprentana úr einni myndatöku - allt eftir ykkar þörfum.
Fyrir myndatökuna er gott að velta því fyrir sér hvað þið viljið fá út úr myndatökunni. Hugsa þá um veggina, heimilið og í áratugum…
Munið samt að ein góð barna- eða fjölskyldumynd er óendalega mikið betra en engin mynd!
Alltaf gaman í myndatöku…
Smellið á mynd til að skoða stærri!
Seinni hluti ⇢ Mynd- og prentvinnsla
Síðan veljið þið myndverk, prentmuni og myndskrár eftir þörfum!
Það er í raun engin formúla um það hversu margar myndir innifaldar og slíkt.
Verð fer eftir fjölda mynda, stærð og framsetning á veggmyndum, fjölda mynda í myndabók, dagatöl o.s.frv. Þess vegna er betra að aðskilja myndatökuna frá myndvinnslu, myndverkum og prentmunum.
Þetta er listrænt handverk og sérunnið samkvæmt ykkar óskum.
Þið hafið meira val og stjórnið betur hvað kemur út úr myndatökunni sem kostar minna fyrir vikið.
Við geymum myndirnar þannig að þið getið alltaf keypt fleiri myndir síðar til að bæta á veggina, til minningar eða til gjafa.
Persónulegri eða eigulegri jólagjafir eru vandfundnar!
Þið eruð bara 4 skrefum frá því að fegra heimilið með fallegum fjölskyldumyndum
Bóka tíma:
Athugið að velja tíma sem hentar yngri kynslóðinni og skiljið stressið eftir heima!
Það er ekki hversdagslegt að fara í myndatöku og þetta er í raun sérstakur viðburður sem fólk man eftir.
Er ekki í lagi að taka sér smá frí frá vinnu eða sleppa eins og einni æfingu?
Það sem skiptir mestu máli er að foreldrum og börnum líði vel, eruð í ró en ekki rjóð!
Bóka tíma fyrr um daginn til að þið verðið fersk á myndunum - næstu 50 árin… ;-)
Ein myndataka ⇢ Margir möguleikar!
3 kostir í boði fyrir allar gerðir af fjölskyldum
Einfalt
Korter | 2+ myndir
Miklu betra en engar myndir
Myndataka:
- Nokkrar góðar brjóstmyndir
- Fermingar eða útskriftarmyndir
- 1-2 uppstillingar (2-5 góðar myndir)
- Einfalt og fljótlegt
Innifalið:
- 2 stafrænar myndir
- (1.600px / 5.000kr virði)
- Myndgátt til að auðvelda val mynda
- Ca 1 klst í vinnu í allt
Möguleikar í útprentunum:
- Stækkanir m/kartoni og rammar ?
- Minni stækkanir án kartons ?
- Jóla-/ boðs-/ þakkar-/ tækifæriskort ?
19.000kr
Vinsælt
Hálftími | 5+ myndir
Full myndataka fyrir einstakling
Myndataka:
- Einstaklingur eða minni fjölskylda með eldri börn
- 5+ uppstillingar (5-20 góðar myndir)
- Fullt af myndum til að velja úr
- Góðar einstaklingsmyndir
- 1 mynd með foreldrum
- Fataskipti - 1 sinni
- Róla, leikmunir o.fl.
- Kirtill (við erum með helstu stærðir)
Innifalið:
- 5 stafrænar myndir
- (1.600px / 12.5000kr virði)
- Myndgátt til að auðvelda val mynda
- Fundur til að auðvelda val á prentmunum
- Ca 2 klst í vinnu í allt
Möguleikar í útprentunum:
- Vandaðar veggmyndir ?
- Striga- /ál- / akríl-/ innrammaðar myndir ?
- Stækkanir m/kartoni og rammar ?
- Jóla-/ boðs-/ þakkar-/ tækifæriskort ?
- Myndabækur og dagatöl með 10-15 myndum ?
- 5-15 auka myndir eftir þörfum ?
29.000kr
Veglegt
Klukkustund | 10+ myndir
Barna-, fermingar- og úskriftarmyndatökur ásamt systkina- og fjölskyldumyndum
Myndataka:
- Yngri börn og stærri fjölskyldur
- 10+ uppstillingar (10-40 góðar myndir)
- Fataskipti - allt að 3 sinnum
- Meiri tími til að gera betur
- Listrænar uppstillingar
- Góðar einstaklingsmyndir
- Fjölskyldumyndir
- Systkinamyndir
- Tvíburar / þríburar
- Rólan, glugginn o.fl.
- Hversdagsföt/Áhugamál/Leikmunir/Gæludýr
- Kirtill (við erum með helstu stærðir)
Innifalið
- 10 stafrænar myndir
- (1.600px / 25.000kr virði)
- Myndgátt til að auðvelda val mynda
- Fundur til að auðvelda val á prentmunum
- Ca 3-4 klst í vinnu í allt
Möguleikar í útprentunum:
- Veglegar veggmyndir ?
- Striga-/ ál-/ akríl-/ innrammaðar myndir ?
- Stækkanir m/kartoni og rammar ?
- Myndabækur og dagatöl með 15-40 myndum ?
- Jóla-/ boðs-/ þakkar-/ tækifæriskort ?
- 10-40 auka myndir eftir þörfum ?
49.000kr
Listrænt handverk ⇢ Lífstíðareign
10 góðar ástæður til að koma með börnin til okkar í myndatöku
Þið eignist persónuleg listaverk af fjölskyldunni, fegrið heimilið og leysið jólagjafavandann - allt í einni töku.
Þið sendið börnunum ykkar mikilvæg skilaboð: Þið skiptið okkur máli - alla daga ársins, áratugum saman.
Varðveitið minningar um viðburði og aldursskeið barnanna - tímabil sem koma aldrei aftur
Barna- og fjölskyldumyndir á veggjum heimila eru ekki bara punt eða prjál heldur áminning um kjarna tilverunnar og mikilvægur þáttur í að halda fjölskyldunni saman.
Fjölskyldumyndir hjálpa til við að viðhalda tengslum og minna á væntumþykjuna sem umlykur heimilið - líka þegar eitthvað bjátar á!
Að fara í myndatöku er áhugaverð upplifun og samverustund meðal fjölskyldunnar. Þið eruð þátttakendur í listrænu ferli sem er í senn skapandi, spennandi og skemmtilegt.
Það er fjölskyldan ykkar sem umbreytir húsi í heimili, en heimili án fjölskyldumynda er eins og búð fullt af glingri en gjörsneydd persónuleika.
Myndverk af börnunum ykkar og prentmunir fullir af ómetanlegum myndum er varanleg minning. Hvað endast ljósmyndir í “skýinu” lengi?
Að fá fallegar fjölskyldmyndir kostar minna en ýmsar fjöldaframleiddar vörur sem veita ykkur takmarkaða ánægju og endast skammt! Fyrir upphæð sem samsvarar einu til tveimur verksmiðjuframleiddum skópörum eignist þið myndverk og minningar af ykkar dýrmætustu eign.
Það getur verið púsluspil að koma fjölskyldunni saman fyrir myndatöku en umstangið verður algjörlega þess virði þegar þið verðið komin með myndirnar upp á vegg og þið farin að deila þeim með vinum og vandamönnum.
Börnin og fjölskyldan skiptir máli ⇢ Sýndu það í mynd/verki
Full ljósmyndaþjónusta og ekkert vesen
Myndatökur, myndvinnsla, útprentun og innrömmun ⇢ Allt á einum stað
Superstudio
Myndatökur og myndvinnsla
Verið velkomin í Superstudio, eitt fullkomnasta ljósmyndastúdió landsins með topp búnaði til myndsköpunar ásamt góðri aðstöðu fyrir viðskiptavini. Við fullvinnum myndverk og prentmuni að öllu leyti til að þið losnið við allt vesenið.
Fagmennska tryggir gæðin
Jón Páll ljósmyndari hefur verið að búa til myndir síðan hann byrjaði að fikta við ljósmyndun í MA 1985. Fullkomnunarárátta ljósmyndarans sér um að útprentun, innrömmun og frágangur verði fyrsta flokks og endist ævilangt.
Superprent
Útprentun og innrömmun
Superprent.is er systurfyrirtæki okkar sem sér um útprentun og innrömmun á stærri myndverkum. Við prentum myndirnar á fyrsta flokks prentefni úr hágæða prentara, 8 lita Epson P8000 með litarefni sem endist í 100+ ár. Þá erum við með innrömmunarþjónustu til að skila myndverkum tilbúnum til að hengja upp á vegg.
Full myndvinnsla
Við eru með áratuga reynslu af myndatökum, myndvinnslu, hönnun og útprentunum. Fólk kemur til okkar til að fá TOPP MYNDIR og FULLA ÞJÓNUSTU. Þú þarf því ekki að þeytast út um borg og bý til að leita að útprentun, innrömmun eða annarri prentþjónustu hjá mörgum aðilum sem hafa minni metnað fyrir “okkar” myndum..
Einhverjar spurningar eða séróskir?
Tímabókun er hér að ofan en ykkur er velkomið að hafa samband ef þið eruð með aðrar spurningar og við svörum eins fljótt og hægt er!
© Jón Páll Vilhelmsson - ljósmyndari